Umhverfisstefna
Markmið:
Við höfum kosið að starfa eftir slagorðinu: ,,Náttúran býður upp á
endalaus ævintýri". Við gerum okkur grein fyrir því að náttúruan er
forsenda starfsemi okkar og þess vegna ber okkur skylda til að
umgangast hana af virðingu og varkárni. Við leggjum metnað í að upplýsa
viðskiptavini okkar um það hvernig ber að umgangast þá viðkvæma náttúru
sem við ferðumst um án þess að það sjáist varanleg ummerki efir ferðir
okkar. Markmið okkar er að starfa í sátt og samlyndi við náttúruna sem
við eigum allt að þakka.
Við erum fyrirtæki sem skiljum ekki eftir okkur spor sem skaða náttúruna.
Ábyrgð gagnvart umhverfinu:
Þegar við þurfum að flytja fólk, farangur eða vistir á milli staða þá
kolefnisjöfnum við ferðir okkar í gegnum íslenskt fyrirtæki sem
sérhæfir sig í slíkum verkefnum, www.kolviður.is.
Að auki erum við félagar í Náttúruverndarsamtökum Íslands sem berjast
fyrir því að vernda miðhálendi Íslands. Náttúruverndarsamtök Íslands
eru félagasamtök áhugafólks um náttúruvernd og eru opin öllum sem
aðhyllast markmið samtakanna.
Við endurvinnum allan þann úrgang sem mögulegt er að endurvinna, bæði á
skrifstofunum okkar og í ferðunum okkar. Aldrei nokkurn tíma skiljum
við eftir úrgang sem ekki eyðist sjálfkrafa upp í náttúrunni.
Söluskrifstofan okkar í Skaftafelli er sú fyrsta sinnar tegundar hér á
landi, byggð af langmestu leiti úr notuðu tilfallandi hráefni og
orkugjafar hússins eru endurnýjandlegir, sólar- og vindorka.
Fyrirtækið rekur sinn eigin leiðsögumannaskóla þar sem leiðsögumenn
fyrirtækisins hljóta þá þjálfun sem nauðsynleg er. Umhverfismál eru þar
ofarlega á baugi og þrátt fyrir að unhverfisvitund Íslendinga sé mjög
sterk er góð vísa aldrei of oft kveðin. Við erum eina þjóðin í heiminum
sem reiðist sig nánast eingöngu á endurnýjanlegar orkuauðlindir til
húshitunar og rafmagnsframleiðslu. Við höfum hér ofgnótt af neysluvatni
og búum við þann munað að geta náð okkur í drykkjarvatn úr næsta læk án
þess að hafa áhyggjur af mengun eða sjúkdómum. Kannski þurfum við að
vera sérstaklega varkár að sofna ekki á verðinum vegna þessara miklu
lífsgæða sem við búum við. Þeir sem eiga nóg eru oft ekki þeir bestu í
að spara.
Félagsleg ábyrgð:
Leiðsögumennirnir okkar eru allir Íslendingar sem þekkja landið sitt
inn og út og svo áhugasamir útlendingar sem við vitum að láta sér annt
um umhverfi sitt og náttúruna.
Við leggju áherslu á góð tengsl við heimamenn á starfsstöðvum okkar og
samvinna við þá er okkar hagur því að heimamenn vita og kunna best.