White Giant: Hvannadalshnúkur Glacier Hike

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
Open the calendar popup.
2
24990 ISK
148,52 EUR
194,22 USD
ISK
148,52 EUR
194,22 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Hvannadalshnúkur, ganga á hæsta tind Íslands.

Fjallganga sem er svo sannarlega skemmtileg áskorun fyrir líkama og sál. Gangan hefst við Sandfell, u.þ.b.10 mínútna akstur frá Skaftafelli.

Erfiðleikastuðull ferðarinnar er 4 af 5 mögulegum. Mjög krefjandi.

Hæð: 2110 metrar

Gönguhækkun: ~ 2000 m

Landslag: Í byrjun ferðar er gengið upp Sandfell, skriðurunnið og þónokkuð bratt fjall sem leiðir okkur upp í fannir Öræfajökuls. Þegar komið er á jökul í um 1000 m hæð fara allir þátttakendur í línu og fylgja leiðsögumanninum sínum. Við tekur aflíðandi snjóbrekka þar til komið eru upp á sléttuna sem myndar koll Öræfajökuls. Við enda sléttunnar rís Hnúkurinn um 150 metra upp fyrir umhverfi sitt og síðasti spottinn á tindinn brattur. Nauðsynlegt er að nota mannbrodda til að fóta sig síðasta spölinn. Gengin er sama leið til baka.

Það er ólýsanleg upplifun að ganga á Hvannadalshnúk. Að standa á hæsta tindi landsins og líta augum hrikalegar víðáttur stærsta jökuls í Evrópu er ótrúleg tilfinning sem erfitt er að lýsa með orðum. Ef veðurguðirnir leifa er útsýnið yfirþyrmandi fallegt og gleymist engum þeim sem upplifað hefur. Í norðri má sjá fjallstoppa rísa upp af hásléttu jökulsins og í suðri lúra svartir sandarnir svo langt sem augað eygir og Atlantshafið ber við sjóndeildarhringinn. Ganga á ,,Hnúkinn” er krefjandi áskorun sem allir geta tekist á við með svolítilli líkamsþjálfun og réttu hugarfari. Það ætti enginn náttúruunnandi að láta þessa ferð fram hjá sér fara.

Kvöldið fyrir uppgöngu halda leiðsögumennirnir stuttan fund með þáttakendum í Skaftafelli til þess að ræða mikilvæg atriði og fara yfir framkvæmd ferðarinnar. Nauðsynlegum sérhæfðum jöklabúnaði fyrir er dreift á göngumenn svo allir geti verið tilbúnir í slaginn eldsnemma næsta morgun.

Þrátt fyrir að leiðin sé ekki tæknilega erfið þá reynir hún virkilega á, bæði líkamlega og andlega. Þetta er löng leið og gangan tekur um 12 – 15 klukkustundir. Samtals er gönguhækkunin um 2000 m og leiðin sjálf er um 23 km sem er dágóð vegalengd að fara fótgangandi á einum degi, svo ekki sé talað um mikla hækkun og lækkun á leiðinni. Göngulandið er krefjandi og þáttakendur þurfa að vera viðbúnir því að þurfa að klofa yfir opnar jökulsprungur. Reyndur fjallaleiðsögumaður og sérhæfður jöklabúnaður tryggja öryggi þitt í ferðinni.

Vinsamlegast athugið að vegna þess að uppgangan hefst eldsnemma morguns og lýkur ekki fyrr en um kvöldmat er nauðsynlegt að gista í Skaftafelli eða nágrenni nóttina áður og nóttina eftir ferðina. Ef þú átt í erfiðleikum með að finna þér gistingu í nágrenninu þá höfum við nokkrar uppástungur.

Gagnlegar upplýsingar:

Verð: 21.990 kr á mann.

Innifalið í verði er leiðsögn og allur sérhæfður jöklabúnaður sem nauðsynlegt er að hafa meðferðis á göngunni.


Við áskiljum okkur þann rétt að fresta eða fella niður ferðir vegna óviðráðanlegra aðstæðna með öryggi þitt í huga.

Fjarlægð frá Reykjavík: 350 km.
Lengd ferðar: U.þ.b. 12-15 klst.
Í boði: 1. maí - 31. ágúst. Athugið að tímabilið er þó mjög háð snjóalögum og aðstæðum á fjallinu.
Lágmarksfjöldi þáttakenda er 2. Aldurstakmark: 18 ára.
Það sem þarf að taka með sér í ferðina er hægt að sjá á útbúnaðarlistanum okkar.

Vinsamlegast hafið samband í síma 571-2100 til að bóka og fá frekari upplýsingar.

Samningsákvæði:

Allir þátttakendur í ferðum á vegum Jöklamanna, þ.m.t. jöklaferðum, eru á eigin ábyrgð. Jöklamenn bera ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandleysis þátttakenda eða má ekki með beinum hætti rekja til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðarleysisyfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Jöklamönnum. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.