Útbúnaðarlisti fyrir jöklaferðir
• Merino ullar eða gerviefna föðurland. Þykkt fer eftir veðri og árstíma. (Innsta lag)
• Ullar eða fleece peysa og helst aukapeysa þegar kalt er í veðri. (Millilag)
-Við mælum með Tecnostretch, Tecnopile eða Tecnowool flísvörunum.
• Vel vatns- og vindheldur jakki og buxur, helst öndunarfatnaður. (Ysta lag eða skel)
• Góðir göngusokkar úr ull eða góðri gerfiefnablöndu.
-Við mælum með Merino ullarsokkum þegar kalt er í veðri, annars Thermolite sokkum.
• Góðir vettlingar.
• Hlý húfa, má einnig vera lambhúshetta, ekki verra að hafa bæði.
• Bakpoki fyrir perónulegan búnað.
• Verklegir gönguskór með góðum ökklastuðning.
-Gönguskór verða að vera lífsreyndir þ.e. það verður að vera búið að
ganga þá til. Að öðru leiti verða skór að vera vatnsheldir og nógu
stífir (hálfstífir) til að hægt sé að festa á þá mannbrodda.
• Sólgleraugu með góðri UV vörn.
• Vatnsflaska
• Sólarvörn
Annað:
• Mundu eftir myndavélinni!