Útbúnaðarlisti fyrir fjallaferðir
• Föðurland ullar eða gerviefni. Þykkt fer eftir veðri og árstíma. (Innsta lag)
• Ullar eða fleece peysa og helst aukapeysa þegar kalt er í veðri. (Millilag)
-Við mælum með Tecnostretch, Tecnopile eða Tecnowool flísvörunum.
• Vel vatns- og vindheldur jakki og buxur, helst öndunarfatnaður. (Ysta lag eða skel)
-Ef buxur eru ekki með snjósokk að neðan þá er gott að vera með legghlífar.
• Góðir göngusokkar úr ull eða góðri gerfiefnablöndu.
-Við mælum með Merino ullarsokkum þegar kalt er í veðri, annars Thermolite sokkum.
• Góðir vettlingar, ullar eða vel vatnsheldir með innri vettling úr flís sem má fjarlægja.
• Hlý húfa, má einnig vera lambhúshetta, ekki verra að hafa bæði.
• Bakpoki 30 - 50 L
• Verklegir gönguskór með góðum ökklastuðning.
-Gönguskór verða að vera lífsreyndir þ.e. það verður að vera búið að ganga þá til. Að öðru leiti verða skór að vera vatnsheldir og nógu stífir til að hægt sé að festa á þá mannbrodda.
• Legghlífar.
• Göngustafir.
• Sólgleraugu og helst skíðagleraugu.
-Mjög mikilvægt er að hafa sólgleraugu með góðri UV vörn til að vernda augun í snjó og á jökli.
• Vatnsílát fyrir 2-3L
• Sólvarnarkrem, UV 30-50.
Annað:
• Góður valkostur ef aukapláss leynist í bakpokanum er dúnúlpa eða Primaloft úlpa.
• Mundu eftir myndavélinni!
Nesti:
• Vatn, gott er að blanda bragðefni eða þess heldur orkuefnum í vatnið.
• Samlokur, sælgæti og orkuríkt fæði (Að meðaltali virðist sem fólk fari með um 2-3 samlokur yfir daginn ásamt nokkrum súkkulaði eða orkustykkjum)
• Heitt drykkjarvatn er góður valkostur á köldum dögum.
Snemma á vorin (apríl, maí) er nauðsynlegt að vera í hlýrri fötum og ekki úr vegi að hafa skíðagleraugu og vindheldar lúffur/vettlinga með í för.
Fatnaður:
Að fara á Hnúkinn tekur milli 10 og 15 tíma að jafnaði. Búast má við hitastigi á bilinu –10°C og upp í 20°C á hvaða tíma árs sem er. Besta leiðin til að vera undirbúinn fyrir þennan mikla hitamun er að klæða sig í lögum. Þannig er hægt að fara út í miklum hita eða auka við fatnað eftir því sem ofar dregur og kólnar. Það er mjög mikilvægt að klæðast fatnaði næst húðinni sem ekki dregur í sig raka. Ull og ýmis gerviefni eru mjög góð. Bómull er alger bannvara á fjöllum! Cintamani Center á Laugarvegi 11 hefur mikið framboð af góðum innanundirfatnaði og geta gefið góð ráð um val á honum.
Matur og drykkur:
Á meðan á fjallgöngunni stendur er stoppað nokkrum sinnum í lengri og skemmri tíma til að nærast og drekka. Mjög gott er að hafa nesti sem samanstendur af sælgæti, t.d. súkkulaði, sem borða má í stuttum pásum og samlokum sem gefa langtíma orku og borða má í löngum pásum.
Það er sjaldgjæft að göngumenn nái ekki toppnum vegna þreytu. Þegar slíkt kemur fyrir er það venjulega vegna vöðvakrampa. Vöðvakrampar verða til vegna samblands áreynslu, vökvaskorts og steinefnaskorts. Besta leiðin til að koma í veg fyrir krampa er að drekka mikið af vökva. Hægt er að blanda ýmis konar orkudrykkjum út í vatn til að bæta upp steinefna- og orkuskort. Best er að velja orkudrykki sem hafa mikið af steinefnum en ekki eingöngu kolvetni. Styrkur blöndunnar ætti að vera um 1⁄2 af því sem framleiðandi mælir með. Vatnið ætti að bera þannig að hægt sé að ná í það á göngu svo ekki þurfi alltaf að taka af sér bakpokann til að drekka. Góður kolvetnaríkur morgunmatur hjálpar til [múslí, brauð, bananar] og ekki er verra að drekka mikið áður en lagt er af stað. Kaffidrykkju ætti að stilla í hóf þar sem hún leiðir til frekara vökvataps.
Það er um að gera að drekka, drekka, drekka og drekka svo meira!