Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD

Jöklaferðir frá Skaftafelli

Skriðjöklar Vatnajökuls eru fjölmargir, hveljökullinn stóri þungi þrýstir ís á undan sér niður á láglendið með miklum tilþrifum sem gera ísstraumana að tilkomumiklum náttúruundrum. Við bjóðum upp á ferðir á  þann fegursta Falljökull. Auk þess bjóðum við fólki uppá samsettar ferðir þar sem farið er á jökul og svo í náttúruskoðun á eftir, ýmist á Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi eða í Ingólfshöfða.

Ferð á Falljökul leiðir þig um eitt mest hrífandi svæði sem Vatnajökull hefur upp á að bjóða. Jökullinn og lónið sem liggur framan við hann skapa skemmtilegt umhverfi sem gaman er að skoða nánar. Fyrir þá sem hafa áhuga bjóðum við upp á að lengja ferðina og fara í siglingu á Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi áður en haldið er til baka í Skaftafell.

Falljökull býður upp á þægilega en þeim mun sérstæðari jökulgöngu. Í ferðinni nálgumst við hrikalegt ísfall jökulsins þar sem hann steypir sér fram af klettahömrum í undirlagi sínu. Fyrir þá sem hafa áhuga bjóðum við upp á að bæta við jökulgönguna traktorskerruferð út í hinn sögufræga og einangaraða Ingólfshöfða. Það er frábær upplifun að upplifa á einum degi andstæður suðurstrandarinnar, hvíta jökla og svarta sanda.

Fyrir þá ævintýragjörnu bjóðum við upp á ísklifur á Falljökli. Í þeirri ferð er farið yfir undirstöðuatriði klifurs í bröttum ísveggjum, þátttakendur reyna sig við skemmtilegar klifurleiðir og leiðsögumaðurinn sér um að tryggja öryggi auk þess að leiðbeina klifrurunum.

Söluskrifstofan okkar er staðsett við Gestastofuna í Skaftafelli. Þangað eru allir alltaf ávallt velkomnir til skrafs og ráðagerða.

Hægt er að lesa sér nánar til um jöklaferðirnar okkar frá Skaftafelli á heimasíðunni en ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 571-2100 ef einhverjar spurningar vakna og til að bóka ferðir.