Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD

Fjallgöngur frá Skaftafelli

Við bjóðum upp á fölbreytt úrval fjallaferða frá Skaftafelli í landslagi sem er algjörlega á heimsmælikvarða. Hvíti risinn Hvannadalshnúkur, er sívinsælt takmark fjallaþyrstra náttúruunnenda og gengur fjöldi fólks á tindinn á hverju vori.

Minna þekktir nágrannar Kóngsins í Öræfajökli eru nokkrir og er þá helst að nefna hina gríðarfögru Hrútfjallstinda sem bjóða upp á fjallgöngur og klifur við allra hæfi.

Sveinstindur innan við Hvannadalshnúk er tindur sem aðeins fáir hafa heimsótt en gefur félaga sínum ekkert eftir í fegurð og mikilfengleik.

Þumall er fræg klettaspíra upp af Kjós í Morsárdal, tindurinn er tignarlegur en illaðgegnilegur og þess vegna afar fáfarinn.

Þverártindsegg í Suðursveit er örlítið fjarlægari nágranni en er falin perla í íslensku fjallaflórunni.

Möguleikarnir eru óendanlegir og við mælum með því að þeir sem hafa áhuga á að kanna landið sitt betur taki upp gönguskóna og arki með okkur inn í sumarið.

Nánari upplýsingar og bókanir í síma 571-2100.