Í suðurjaðri hvíta risans Vatnajökuls kúrir gróðurvinin Skaftafell. Staðurinn er flestum Íslendingum að góðu kunnur og hefur í margra hugum á sér ævintýralegan blæ enda umhverfið engu líkt. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli er nú orðinn hluti af Vatnajökulsþjóðgarði, lang stærsta þjóðgarði í Evrópu. Við bjóðum upp á fjölbreyttar
fjallaferðir,
jöklaferðir og
fjallahjólaferðir frá Skaftafelli yfir sumartímann.
Margir af fegurstu skriðjöklum Vatnajökuls skríða til suðurs niður á láglendið í nágrenni Skaftafells. Þeirra fremstur er Falljökull.
Við bjóðum upp á tiltölulega auðvelda
jökulgöngu á Falljökli og einnig er í boði
pakkaferð sem felur í sér jökulgöngu á sama jökli auk óviðjafnanlegrar náttúruskoðunarferðar í Ingólfshöfða.
Við þá ferð er einnig hægt að bæta
stórbrotinni siglingu á Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi.
Fyrir þá sem hafa hug á að reyna á eigin þolþrif í krefjandi landslagi svæðisins er ýmislegt í boði. Ferðir á konunginn sjálfan, Hvannadalshnúk auk minna þekktra en ekki síðri tinda eru í boði.
Skoðið úrvalið hér.
Frábær leið til að skoða Skaftafell á stuttum tíma en njóta þess þó í botn er að þeysa um á hjólhesti. Við bjóðum upp á skemmtilega
fjallahjólaferð um frábært landsvæði þar sem við heimsækjum meðal annars hinn fræga Bæjarstaðaskóg.
Hægt er að kynna sér ferðirnar okkar nánar hér á heimasíðunni eða hafa sambandi við okkur í síma
571-2100.
Vinalega og mjög svo umhverfisvæna söluskrifstofan okkar er staðsett við Gestastofuna í Skaftafelli. Þangað eru líka allir ávallt velkomnir í rjúkandi kaffibolla til þess að ræða málin.