Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Snæfellsjökull - Fjallaskíði

Frábær skíðaferð á eitt formfegursta og sögufrægasta fjall landsins.

Erfiðleikastig ferðar: 3+ af 5 mögulegum. Krefjandi.

Hæð: 1446 metrar.

Landslag: Í byrjun ferðar er gengið um hraun og vikurbrekkur þar til komið er upp í snjó svo nauðsynlegt er að bera skíðabúnaðinn fyrsta spölinn. Það fer eftir árstíma í hversu mikilli hæð snjólínan liggur. Í um 900 m hæð tekur jökullinn við með allmörgum jökulsprungum sem eru huldar snjó fram eftir sumri. Þáttakendur ganga því í línu með leiðsögumanni og hafa meðferðis nauðsynlegan jöklabúnað. Snæfellsjökull bíður upp á fyririrtaks skíðaleiðir í auðveldari kantinum svo fjallaskíðaferð á Snæfellsjökul er tilvalin fyrir þá sem hafa ekki mikla reynslu af fjallaskíðamennsku og eru að stíga sín fyrstu skref.

Meðal uppgöngutími: 3-5 klst.

Meðal heildarlengd ferðar: 5-7 klst. (U.þ.b. 12 tímar frá Reykjavík og til baka).

Lagt upp í ferðina frá bensínstöðinni á Arnarstapa.

Hækkun: ~1100 metrar.

Snæfellsjökull er ægifagurt eldfjall vestast á Snæfellsnesi. Fjallið er nær fullkomin keila að lögun þar sem það rís frá sjávarmáli og upp í 1450 m hæð. Greinilega sést hvernig þykk hraun hafa runnið niður hlíðar fjallsins. Langt er þó síðan fjallið gaus síðast eða um 1800 ár. Fegurð þess hefur orðið mörgu skáldinu yrkisefni og meðal stórra verka sem tengjast fjallinu má nefna skáldsögu franska rithöfundarins Jules Verne, Journey to the Center of the Earth sem fræg er orðin. Ferð á Snæfellsjökul er ógleymanlegt ævintýri og jafnvel hörðustu efasemdamenn eiga erfitt með að bera á móti sögunum sem fara af miklu orkuflæði frá jöklinum. Á björtum dögum er mjög víðsýnt af jöklinum, Snæfellsnesið blasir við í allri sinni dýrð, Faxaflóinn í suðri, Breiðafjörðurinn í norðri og Vestfjarðarkjálkinn handan hans. Í stuttu máli er fjallaskíðaferð á Snæfellsjökul dagsferð í algjörum heimsklassa og er lítil hætta á að slík för gleymist nokkru sinni heldur lifi í minningabankanum um aldur og ævi.


Gagnlegar upplýsingar:

Verð: 19.990 kr. 

Innifalið í verði: Leiðsögn og allur nauðsynlegur sérhæfður jöklabúnaður.  Akstur frá Reykjavík og til baka.

Brottför frá Reykjavík: 08:00
Brottför frá Arnarstapa: 10:30

Ferðin er í boði frá apríl og fram í september, með fyrirvara um veður og snjóalög.
Fjarlægð frá Reykjavík: U.þ.b. 180 km. Lengd ferðar frá Reykjavík: U.þ.b. 12 klst.
Aldurstakmark: 16 ár. Lágmarksfjöldi: 5. Hámarksfjöldi: 60

Við áskiljum okkur rétt til þess að fresta eða aflýsa ferðum ef við metum veður eða aðrar óviðráðanlegar aðstæður þannig að ekki sé unnt að framkvæma ferðina á öruggan hátt.

Vinsamlegast kynnið ykkur útbúnaðarlistann fyrir þessa ferð til að vera viss um að hafa allan nauðsynlegan búnað meðferðis í ferðina.

Nánari upplýsingar og bókanir í síma 571-2100.

Samningsákvæði:

 Allir þátttakendur í ferðum á vegum Jöklamanna, þ.m.t. jöklaferðum, eru á eigin ábyrgð. Jöklamenn bera ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandleysis þátttakenda eða má ekki með beinum hætti rekja til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðarleysisyfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Jöklamönnum. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.