Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Fjallaskíðaferð á Heklu

Fjallaskíðaferð á frægasta og jafnframt eitt virkasta eldfjall landsins. Hekla er stórglæsileg á að líta og fyrir Íslendinga er það hálferð pílagrímsför að ganga á fjallið sem áður fyrr var talið geyma innganginn að helvíti sjálfu.

Erfiðleikastuðull ferðarinnar er 3 af 5 mögulegum.

Hæð: 1491 m.

Landslag: Í upphafi er gengið á flatlendi um úfið hraun og líklegt að eitthvað þurfi að bera skíðabúnað að fjallinu. Þegar komið er að hlíðum fjallsins verður göngulandið snjór og hugsanlega ís þegar nálgast fer toppinn. Gangan er aldrei mjög brött en nokkuð krefjandi samt sem áður. Fjallaskíðaferð á Heklu er mjög háð snjóalögum.

Meðal uppgöngutími: 3-4 tímar. Meðal ferðatími: 7-8 tímar.

Gönguhækkun: ~1040 m.

Hekla er án efa frægasta eldfjall landsins og þó víðar væri leitað. Hún er annað virkasta eldfjall Íslands og hefur gosið þó nokkrum sinnum á sögulegum tíma, síðast í febrúar árið 2000. Hún gnæfir tignarleg yfir suðurlandinu enda hátt í 1500 m há og sést víða að. Í hundruðir ára trúði fólk því að fjallið væri fordyri helvítis og enginn dyrfðist að ganga á fjallið fyrr en Eggert Ólafsson lét til skarar skríða og gekk á hæsta tind Heklu sumarið 1750. Síðan þá hefur Hekla verið vinsæll áfangastaður göngugarpa, ekki síst á síðustu árum eftir að áhugi landsmanna á fjallgöngum og útiveru tók að glæðast. Fjallið er spennandi, ekki síst vegna vel þekktrar gossögu þess en þó ber að sjálfsögðu að hafa varann á því að gos í Heklu gera ekki alltaf boð á undan sér. Um þessar mundir er ekki alls ólíklegt að fjallið fari að vakna af værum svefni svo við metum í hvert skipti hvort ferð á tindinn sé ráðleg eða ekki. Hún Hekla okkar er stórmerkileg, falleg og skemmtileg. Við mælum með að sækja hana heim. Á góðum dögum er útsýnið af toppnum ekki af verri endanum.

Gagnlegar upplýsingar:
 
Verð: 19.990 kr

Innifalið í verði er leiðsögn og allur nauðsynlegur búnaður til jöklaferða. Akstur frá Reykjavík og til baka.

Fjarlægð frá Reykjavík: U.þ.b. 160 km.
Meðal ferðatími: 7-8 tímar.
Í boði frá apríl - september (ferðin er háð veðri).
Lágmarksfjöldi: 4 manns. Hámarksfjöldi: 60 manns. Aldurstakmark: 16 ár.

Vinsamlegast kynnið ykkur útbúnaðarlistann fyrir fjallaferðir áður en lagt er upp í ferðina.

Lagt af stað í ferðina kl.08:00 frá Reykjavík.
Lagt af stað kl. 10:00 frá fjallsrótum.

Við áskiljum okkur rétt til að fresta eða aflýsa ferðum vegna veðurs eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.


Bókanir og nánari upplýsingar í síma 571-2100.

Samningsákvæði:

Allir þátttakendur í ferðum á vegum Jöklamanna, þ.m.t. jöklaferðum, eru á eigin ábyrgð. Jöklamenn bera ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandleysis þátttakenda eða má ekki með beinum hætti rekja til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðarleysisyfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Jöklamönnum. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.