Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD

Skíða- og brettaferðir frá Reykjavík

Auk þess að bjóða uppá fjallgöngur á uppáhalds fjöllin okkar í nágrenni Reykjavíkur bjóðum við upp á skíða-og brettaferðir á sömu fjöll fyrir þá sem kjósa að sameina fjallgöngu og skíðamennsku.

Við bjóðum upp á fjallaskíðaferðir á Eyjafjallajökul á vorin þegar aðstæður eru hagstæðar til skíðamennsku. Eyjafjallajökull býður upp á úrvals fjallgöngu á einn tignarlegasta jökul landsins sem verður ennþá betri með möguleika á góðri bunu niður hágæða skíðabrekku.

Við bjóðum einnig upp á fjallaskíðaferðir á Snæfellsjökul og Heklu. Bæði þrælskemmtileg fjöll sem er gaman að ganga á og skíða.

Við bjóðum svo áhugasömum upp á skíða- og brettaferðir á Heklu og Snæfellsjökul. Þá göngum við með skíðaútbúnaðinn á bakinu og rennum okkur svo niður af toppnum. Þess ber að geta að það að hafa skíðabúnað með í för gerir uppgönguna mun erfiðari vegna þess að í löngum fjallgöngum skiptir hvert auka kíló í bakpokanum máli. En fyrir þá sem treysta sér til er slík ferð skemmtilegt ævintýri.

Við bjóðum einnig upp á að sérsníða ferðir á önnur fjöll sé þess óskað.

Við mælum með því að þeir sem hafa hug á að leggja upp í skíða-eða brettaferð með okkur hafa einhverja reynslu af skíðamennsku.

Ekki hika við að hafa samband í síma 571-2100 til að fá nánari upplýsingar um skíða-og brettaferðir.