Við bjóðum upp á dagsferð á lengsta skriðjökul landsins, Sólheimajökul. Jökullinn er undarlegt náttúrufyrirbæri sem skríður niður úr Mýrdalsjökli um 7 km leið niður á láglendið en fer því miður hratt minnkandi. Ferðin er skemmtileg blanda af jökulgöngu og ísklifri.
Ferðin hefst í Reykjavík kl. 08:30 og það tekur rúmar tvær klukkustundir að keyra að jöklinum. Þegar þangað er komið fá þátttakendur í hendurnar nauðsynlegan búnað fyrir ferðina, mannbrotta, ísexi, hjálm og klifurbelti. Þegar allir eru tilbúnir er haldið af stað að jöklinum. Gengið er um landsvæði sem hefur komið undan hörfandi jöklinum á allra síðustu árum og er því auðnin ein. Jökulsá á Sólheimasandi sem kvíslast undan jöklinum er síbreytileg og gróður hefur ekki enn náð að festa sig í sessi á þessu svæði. Þegar komið er að jöklinum fer leiðsögumaðurinn yfir helstu öryggisatriði sem nauðsynlegt er að fara eftir í jöklaferðum og þjálfar þátttakendur í því að ganga á mannbroddum. Því næst er haldið af stað á vit ævintýranna á jöklinum. Við röltum um undraveröld íss og vatns í þó nokkra stund og svipumst um eftir góðum staðsetningum til þess að setja upp búnað til þess að allir sem hafa áhuga geti reynt sig við ísklifur. Það er frábær skemmtun og fyrir all flesta mun erfiðara en það lítur út fyrir að vera. Eftir að allir hafa reynt sig við ísvegginn er haldið til baka af jöklinum. Á leiðinni aftur til Reykjavíkur er stoppað við Skógafoss og oftast erum við komin til baka til Reykjavíkur um kvöldmatarleitið.
Við mælum með þessari ferð fyrir alla þá sem ahfa gaman af því að prófa eitthvað nýtt og hafa gaman að stórbrotinni náttúru.
Þessi ferð er í boði daglega yfir sumartímann og einnig á veturna.
Gagnlegar upplýsingar:
Verð 15.990 kr
Verð með akstri frá Reykjavík: 19.990 kr
Nánari upplýsingar og bókanir í síma 571-2100.
Samningsákvæði:
Allir þátttakendur í ferðum á vegum Jöklamanna, þ.m.t. jöklaferðum, eru á eigin ábyrgð. Jöklamenn bera ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandleysis þátttakenda eða má ekki með beinum hætti rekja til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðarleysisyfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Jöklamönnum. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.