Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD

Jöklaferðir frá Reykjavík

Við bjóðum upp á eina jöklaferð frá Reykajvík. Sólheimajökull, lengsti skriðjökull landsins skríður niður úr Mýrdalsjökli sunnanverðum og er í um það bil tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá Reykjavík. Við keyrum þangað, gerum okkur klár í jökulgöngu og röltum um jökulinn. Í ferðinni fá þátttakendur líka að prófa ísklifur sem er bísna krefjandi og skemmtilegt.

Öll vitum við að jöklar þekja um 10% landsins okkar en færri hafa komist í kynni við þessi skemmtilegu náttúrufyrirbæri. Jöklarnir eru mjög fallegir á að líta en nýr heimur opnast fyrir þeim sem ganga um jökulinn og gægjast inn í töfraveröld íss og vatns. Það er stórhættulegt að ferðast um jökla án nauðsynlegs útbúnaðar og þekkingar. Við bjóðum upp ár ferðir með reyndum leiðsögumönnum og allur sérhæfður útbúnaður er innifalinn í verðinu.

Við mælum með ferð á Sólheimjökul sem skemmtilegri ævintýraferð innanlands og yfir sumartímann förum við daglega á jökulinn.

Við veitum nánari upplýsingar og bókum ferðir í síma 571-2100.