Gengið á hátind tignarlegasta jökuls suðurstrandarinnar. Þessi virka eldkeila er bíður hverjum þeim sem á hana gengur upp á frábæra upplifun og stórbrotið útsýni af toppnum ef veður leifir.
Erfiðleikastig ferðar: 4 of 5 mögulegum. Krefjandi.
Lagt upp í ferðina frá Reykjavík.
Hæð: 1651 m.
Landslag: Frekar bratt brölt upp að jökulröndinni sem er í um 900 m hæð. Löng og frekar aflíðandi ganga er yfir jökulinn sem verður brattari þegar fer að nálgast Hámund, hæsta tind jökulsins. Jökulinn er sprunginn á köflum svo nauðsynlegt er að ganga í línu og vera í fylgd með leiðsögumanni. Þátttakendur fá afhentan sérhæfðan jöklabúnað í upphafi ferðar, þ.e. göngubelti, mannbrodda, ísexi o.s.frv.
Meðal uppgöngutími: 6-8 klst.
Meðal heildarlengd ferðar: 10-12 klst.
Í um það bil tveggja klukkustunda fjarlægð frá höfuðborginni rís áfangastaður okkar hár og fagur upp frá suðurströndinni. Eins og svo margir jöklar landsins er Eyjafjallajökull, virkt eldfjall sem enn lætur á sér kræla og er toppur þess þakinn um 78 ferkílómetra jökulkápu. Fjallið er eitt af fáum eldkeilum landsins og síðast varð eiginlegt gos í Eyjafjallajökli á árunum 1821-1823. Gangan á jökulinn er löng og krefjandi og á köflum er gengið um allt að 25-30° brattar brekkur. En verðlaunin eru ríkuleg og uppskeran fagurt ústýni yfir land og haf. Í góðu veðri gefur að líta sprungum skrýddan jökulinn, góðan skerf að Íslandi auk helstu nágranna fjallsins, t.d. Mýrdalsjökul, Heklu, Tindfjöll, Vestmannaeyjar og svo mætti lengi telja. Tveir stærstu skriðjöklar Eyjafjallajökuls falla norður úr jöklinum og niður í Þórsmörk, Gígjökull og Steinholtsjökull. Þeir fara nú hratt minnkandi með hverju árinu sem líður. Sannarlega óviðjafnanlegt útsýni. Komið hefur fyrir að erlendir þátttakendur í ferðum okkar hafi fellt eitt eða tvö tár af gleði yfir að vera þeirra forréttinda aðnjótandi að fá að standa þarna á hæsta tindi og upplifa þau miklu hughrif sem oft taka yfirhöndina þegar fegurðin ein blasir við. Gleðin yfir því að hafa sigrast á persónulegri áskorun, að standa á toppnum og njóta árangurs erfiðisins er engu líkt. Þegar aðstæður leyfa býður jökulinn upp á eina bestu skíðaleið landsins og við bjóðum upp á skíðaferðir fyrir hópa sé þess óskað sérstaklega.
Gagnlegar upplýsingar:
Verð: 29.990 kr.
Staðfestar brottfarir:
Laugardagur 17. apríl 2010
Brottför frá Reykjavík kl. 07:00
Brottför frá Seljavöllum við rætur fjallsins kl. 10:00
Í boði frá byrjun apríl til loka September (háð veðri og aðstæðum). Fjarlægð frá Reykjavík: 160 km. Aldurstakmark: 16 ár. Lámarks fjöldi þátttakenda: 4. Hámarks fjöldi þátttakenda: 60.
Innifalið: leiðsögn og allur sérhæfður búnaður til jöklafarar.
Taktu með þér: Sjá búnaðarlista SETJA INN LINK. Ferðin hefst kl. 7:00 í Reykjavík eða 10:00 við rætur fjallsins.
Við áskiljum okkur þann rétt að fresta eða fella niður ferðir vegna óviðráðanlegra aðstæðna með öryggi þitt í huga.
Nánari upplýsingar og bókanir í síma 571-2100.
Samningsákvæði:
Allir þátttakendur í ferðum á vegum Jöklamanna, þ.m.t. jöklaferðum, eru á eigin ábyrgð. Jöklamenn bera ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandleysis þátttakenda eða má ekki með beinum hætti rekja til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðarleysisyfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Jöklamönnum. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.